Möttull er um 2900 km þykkt lag á milli jarðskorpu og kjarna jarðar. Möttullinn er að mestu úr föstu efni. Iðustraumar er hreyfing möttulefnisins, en möttulstrókur er uppstreymissvæði bergkviku í möttlinum og jarðskorpan bungar upp yfir þess svæði. Við mörk möttuls og kjarna er hitinn um 3250 °C. Þrátt fyrir þennan mikla hita er efnið á þessu dýpi í föstuformi. Hitastigið lækkar eftir því sem ofar dregur. Um 200 km dýpi hefur þrýstingurinn lækkað mikið en hitinn er enn það mikill að bergið fer að linast.