Jarðskorpan umlykur alla jörðina og hún er 7-70 km þykk. Hún skiptist í úthafsskorpu og meginlandsskorpu þar sem úthafsskorpan er töluvert þynnri en meginlandsskorpan eða um 7-11 km. þykk. Meginlandsskorpan er aftur á móti 35-40 km. þykk og sérstaklega undir fellingafjöllum er henni hefur verið þrýst saman.